Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við val á landsfundarfulltrúum í Kópavogi.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við val á landsfundarfulltrúum í Kópavogi.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við val á landsfundarfulltrúum í Kópavogi.
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, sagði í færslu á Facebook fyrr í dag að vinnubrögð sem viðhöfð hafi verið innan flokksins hafi gengið fram af sér.
Kveðst hún hafa fengið „hótunar“-símtöl frá „jakkafataklæddum mönnum innan flokksins þar af einum háttsettum sem fór langt út fyrir sitt umboð í ljósi embætti síns“. Auk þessa hafi hún verið boðuð í yfirheyrslur í bakherbergi í Valhöll í fyrrakvöld.
„Þar var talað niður til mín og ég lítilsvirt. Það var farið með mig eins og sakamenn í sakamáli þá er ég að vísa einnig í ítrekuð yfirheyrslusímtöl,“ sagði í færslu Berglindar.
Jón segir í færslu sinni að alvarleg staða hafi komið upp við val á landsfundarfulltrúum í Kópavogi.
„Í stað þess að sjálfstæðisfélögin í Kópavogi hefðu haldið félagsfundi til þess að staðfesta val sitt á fulltrúum, eins og ber að gera samkvæmt lögum flokksins, þá samþykkti stjórn fulltrúaráðsins í Kópavogi listana. Að loknum stjórnarfundi þess ágæta ráðs, en áður en listinn var sendur til skrifstofu Valhallar, var þó fjölda aðila einhliða bætt á listann án þess að það hefði verið borið undir stjórn eða félagsfund. Ekki þarf að fjölyrða um lögmæti þessara vinnubragða.“
Þá segir hann að hætta hafi orðið á að listinn yrði úrskurðaður ógildur og því hafi Jón og margir aðrir í flokksstarfinu í Kópavogi, þ.m.t. stjórnarmenn í sjálfstæðisfélögunum og fulltrúaráðinu – hvatt bæði formann Sjálfstæðisfélagsins og formann fulltrúaráðsins í Kópavogi til að halda þar til bæra fundi til að afgreiða lögmæta lista.
Kjörbréfanefnd var skipuð lögmönnum beggja frambjóðenda og oddamanni, Brynjari Níelssyni, sem Jón segir að báðir frambjóðendur samþykktu. „Eftir fundi hennar með formönnum félaganna í Kópavogi náðist niðurstaða i málinu. “
Þá segist hann hafna því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við framangreint.
„Ég átti eitt stutt símtal við formann Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi sunnudaginn 30. október þar sem ég benti henni á ólögmæti listanna. Ég lýsti áhyggjum mínum af því að ef ekki yrði brugðist við væri hætta á að fáir hefðu heimild til setu á landsfundi fyrir hönd Kópavogs. “