Nærri tvö þúsund fulltrúar á landsfundi

Nærri tvö þúsund fulltrúar á landsfundi

Hátt í tvö þúsund fulltrúar eiga rétt á setu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í Laugardalshöllinni í dag og stendur fram á sunnudag. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð.

Nærri tvö þúsund fulltrúar á landsfundi

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2022 | 4. nóvember 2022

Unnið var hörðum höndum að því í gær að gera …
Unnið var hörðum höndum að því í gær að gera sal Laugardalshallar tilbúinn fyrir landsfundinn. mbl.is/Árni Sæberg

Hátt í tvö þúsund fulltrúar eiga rétt á setu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í Laugardalshöllinni í dag og stendur fram á sunnudag. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð.

Hátt í tvö þúsund fulltrúar eiga rétt á setu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í Laugardalshöllinni í dag og stendur fram á sunnudag. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð.

Búast má við því að kjör í embætti formanns setji svip á fundinn en kosið verður á milli Bjarna Benediktssonar formanns og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra. Það gæti orðið til þess að fleiri sæktu fundinn en annars hefði orðið.

Landsfundir Sjálfstæðisfokksins eru alla jafna haldnir á tveggja ára fresti en nú stendur þannig á að ekki hefur verið fundað frá árinu 2018.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is