Afgönskum konum er nú meinaður aðgangur að líkamsræktarstöðvum og mega þær ekki baða sig á almenningsstöðum, eins og sundlaugum. Þetta bann talíbana kemur nokkrum dögum eftir að þeir bönnuðu konum aðgang að almennings- og skemmtigörðum.

Síðan að talíbanar komust til valda í Afganistan í fyrra hafa þeir markvisst skert réttindi kvenna. Stúlkum hefur til að mynda verið meinuð skólaganga á miðstigi og konur fá ekki að sinna opinberum störfum.
Auk þess hefur konum verið bannað að ferðast um einar síns liðs og þurfa þær að hylja andlit sitt að fullu á almannafæri.