Demókratinn Katie Hobbs lagði Repúblíkanann Kari Lake í slagnum um ríkisstjórastólinn í Arizona. Þetta hefur bandaríska fréttastofan CBS staðfest.

Niðurstaðan er talin áfellisdómur á málflutning Lake, sem hefur haldið á lofti samsæriskenningum Trumps um víðtækt kosningasvindl í forsetakosningunum árið 2020, þar sem hann tapaði fyrir Joe Biden.
Þá hafði Donald Trump lýst yfir stuðningi við Lake.
Í sigurræðu sinni sagði Hobbs að „á þessum tímum sundrungar“ myndi hún leggja sig fram við að starfa fyrir alla íbúa ríkisins.
Lake hefur gefið í skyn að hún telji niðurstöður kosninganna ekki réttar þar sem að einhver atkvæði greidd henni hafi ekki verið talin.
Enn hefur ekki skýrst hvernig lokaniðurstöður í fulltrúadeild bandaríska þingsins munu líta út viku eftir að kosningarnar fóru fram.
Repúblíkanar þurfa 218 þingsæti til að ná fram meirihluta í fulltrúadeildinni en líkurnar á því eru taldar hafa minnkað verulega. Flokkurinn hefur þegar tryggt sér 215 sæti og Demókratar 211.