Meginmarkmið ríkissjóðs í samningaumleitunum um uppgjör við lánveitendur ÍL-sjóðs hafa verið skilgreind í samráði við verkefnisstjórn sjóðsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að Bjarni Benediktsson, fjármála - og efnahagsráðherra, kynnti stöðu úrvinnslu og uppgjörs eigna og skulda ÍL-sjóðs 20. október og lagði fram skýrslu um stöðu sjóðsins á Alþingi.
Við framhald málsins voru meginmarkmiðin skilgreind og eru þau eftirfarandi:
1. Uppgjör miðast við eftirstöðvar skuldbindinga ÍL-sjóðs ásamt verðbótum og áföllnum vöxtum. ÍL-sjóði verði slitið og ábyrgð ríkisins gerð upp.
2. Fjármálastöðugleika verði ekki teflt í tvísýnu.
3. Jafnræði verði tryggt gagnvart eigendum skuldabréfa ÍL-sjóðs.
4. Fjárhagslegt uppgjör verði gagnsætt m.t.t. virðis og samsetningar yfirfærðra eigna.
5. Stöðu ríkissjóðs sem útgefanda á markaði verði ekki raskað.
6. Við samningsgerð verður eftir fremsta megni horft til hagsmuna og þarfa mótaðila.
7. Samningar feli í sér endanlega niðurstöðu.
„Vegna stöðu sjóðsins er lögð mikil áhersla á að samningaumleitanir gangi greiðlega,“ segir í tilkynningunni.