Lætur fjarlægja húðflúrin

Húðflúr | 19. nóvember 2022

Lætur fjarlægja húðflúrin

Leikkonan Zoë Kravitz segist ekki lengur þurfa að hafa öll húðflúrin sín á líkamanum og ætlar að láta fjarlægja þau. Fjöldi húðflúra skreyta líkama hennar, en hún segist ekki hafa tölu á því hversu mörg þau eru. 

Lætur fjarlægja húðflúrin

Húðflúr | 19. nóvember 2022

Leikkonan Zoë Kravitz ætlar að láta taka nokkur húðflúr í …
Leikkonan Zoë Kravitz ætlar að láta taka nokkur húðflúr í burtu. AFP

Leikkonan Zoë Kravitz segist ekki lengur þurfa að hafa öll húðflúrin sín á líkamanum og ætlar að láta fjarlægja þau. Fjöldi húðflúra skreyta líkama hennar, en hún segist ekki hafa tölu á því hversu mörg þau eru. 

Leikkonan Zoë Kravitz segist ekki lengur þurfa að hafa öll húðflúrin sín á líkamanum og ætlar að láta fjarlægja þau. Fjöldi húðflúra skreyta líkama hennar, en hún segist ekki hafa tölu á því hversu mörg þau eru. 

„Ég hugsa bara að ég hafi ekki lengur þörf fyrir þetta á líkama mínum,“ sagði leikkonan í viðtali við tímaritið GQ á dögunum. Eitt af þeim húðflúrum er til dæmis stjarna á einum fingra hennar sem hún fékk sér þegar hún var 18 ára gömul. 

„Mér finnst húðflúr vera falleg, eitthvað til að skreyta líkamann með eins og förðun eða skartgripir,“ sagði Kravitz í viðtalinu en þar var hún spurð hvort það væri rétt að hún væri með 56 húðflúr. „Það er fyndið því ég veit ekki einu sinni hvað ég er með mörg. Ég sé þau varla lengur því ég er orðin svo vön þeim . Ég er búin að láta fjarlægja nokkur, en ég ætla samt að fá mér fleiri húðflúr einhvern tíman,“ sagði leikkonan sem er 33 ára gömul. 

Mörg húðflúranna hafa merkingu fyrir Kravitz, þar á meðal er hún með Free At Last húðflúr, eins og faðir hennar, Lenny Kravitz. Þá er hún með setningu á frönsku „être toujours ivre“ sem lauslega þýðist að vera alltaf fullur, en fyrrverandi stjúppabbi hennar Jason Momoa er með sömu setningu flúraða á líkama sínum.

Zoë Kravitz.
Zoë Kravitz. AFP
mbl.is