Engin áhrif á áform Samherja í Grindavík

Samherji | 24. nóvember 2022

„Það er bara verið að afla frekari gagna og vinna úr þeim í samstarfi við tæknideild hjá Grindavíkurbæ og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Svo verður þetta lagt fyrir næsta fund [skipulagsnefndar],“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldi.

Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis hjá Samherja, segir höfnun byggingarleyfis …
Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis hjá Samherja, segir höfnun byggingarleyfis í Grindavík ekki tefja uppbyggingu félagsins í bænum. Ljósmynd/Samherji

„Það er bara verið að afla frekari gagna og vinna úr þeim í samstarfi við tæknideild hjá Grindavíkurbæ og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Svo verður þetta lagt fyrir næsta fund [skipulagsnefndar],“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldi.

„Það er bara verið að afla frekari gagna og vinna úr þeim í samstarfi við tæknideild hjá Grindavíkurbæ og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Svo verður þetta lagt fyrir næsta fund [skipulagsnefndar],“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldi.

Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar hafnaði á síðasta fundi sínum byggingarleyfi fyrir seiðahús við Laxeldisstöðina Stað vestan Grindavíkur. Ástæðan var sögð vera að áformin samræmdust ekki gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið.

Seiðahúsið er liður í stórfelldri uppbyggingu landseldis á vegum Samherja á Reykjanesi, en stefnt er að 40 þúsund tonna laxeldi á svæðinu.

Spurður hvort höfnun skipulagsnefndar hafi í för með sér töf, svarar Jón Kjartan því neitandi. „Það er verið að leggja fram viðbótargögn og á ekkert að tefja neitt ef þetta fer eins og við höldum. Við erum bara að vinna með þeim í að klára það sem uppá vantaði.“

mbl.is