Sigldi stjórnlaust eftir bilun í skrúfbúnaði

Samherji | 28. nóvember 2022

„Enginn meiddur og vonandi engar skemmdir, en skoðum það næstu klukkutímana,“ svarar Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, við spurningum 200 mílna um strand Vilhelms Þorsteinssonar EA, skammt frá höfninni í Neskaupstað í dag.

Vilhelm Þorsteinsson EA varð stjórnlaus og svo vélarvana eftir bilun …
Vilhelm Þorsteinsson EA varð stjórnlaus og svo vélarvana eftir bilun í skrúfubúnaði skipsins. Ljósmynd/Samherji

„Enginn meiddur og vonandi engar skemmdir, en skoðum það næstu klukkutímana,“ svarar Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, við spurningum 200 mílna um strand Vilhelms Þorsteinssonar EA, skammt frá höfninni í Neskaupstað í dag.

„Enginn meiddur og vonandi engar skemmdir, en skoðum það næstu klukkutímana,“ svarar Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, við spurningum 200 mílna um strand Vilhelms Þorsteinssonar EA, skammt frá höfninni í Neskaupstað í dag.

Annars vísar Kristján til tilkynningar á vef félagsins vegna málsins, en þar segir að bilun í skrúfubúnaði skipsins hafi orðið til þess að „skipið tók að sigla stjórnlaust aftur á bak og varð síðan vélavana.“

Rak þá skipið upp að bröttum sandkanti sem er rétt sunnan við hafnarmynnið. Barði NK skip kom strax til aðstoðar og dró Vilhelm að bryggju.

Eins og fyrr segir verður skoðað hvort skemmdir hafa orðið á skipinu en einnig verður skoðað hvað hafi gerst í vélabúnaði skipsins sem leiddi til þess að það varð stjórnlaust.

mbl.is