Lína Birgitta Sigurðardóttir, athafnakona og áhrifavaldur, fagnaði jólaútgáfu hárvörubox í samstarfi við hárvörumerkið John Frieda.

Útgáfupartíið var haldið í versluninni Beautybox. Húsið var troðfullt af kunnuglegum andlitum en á meðal gesta var unnusti Línu Birgittu, Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor.
Í partíinu kynnti Lína Birgitta boxið fyrir gestum og sýndu hárgreiðsluskvísurnar Fanney Sara Friðriksdóttir og Tinna María Björgvinsdóttir listir sínar með því að töfra fram fallegar greiðslur til að gefa gestum innblástur fyrir hátíðarhárgreiðslurnar.
Þema kvöldsins var Meiri lyfting en vörurnar í jólaboxi Línu eru einmitt hennar uppáhaldsvörur til að lyfta hárinu og gera meira úr því við hátíðleg tilefni.