Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason hefur höfðað mál gegn umboðsskrifstofunni Topas International í Solingen. Segir hann umboðsskrifstofuna skulda sér 45 þúsund evrur, eða um 6,6 milljónir íslenskra króna, eftir að hann fór með sigur af hólmi í raunveruleikaþáttunum Let's Dance í Þýskalandi á síðasta ári. Rheinische Post greinir frá.

Topas heldur því hins vegar fram að Rúrik hafi ekki fengið greitt vegna þess að hann hafi ekki staðið við samning sinn. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi í Wuppertal í Þýskalandi í gær.
Um leið og taka átti málið fyrir óskaði lögmaður Rúriks eftir því að fyrirtökunni yrði frestað því málsaðilar beggja hliða vildu láta reyna á það að ná sáttum.
Rúrik var ekki viðstaddur. Hann er á leið til Miami í Bandaríkjunum eins og glöggir fylgjendur hans hafa tekið eftir á Instagram.