Hér er á ferðinni uppskrift sem smellpassar á degi sem þessum. Kjúklingurinn er í dýrindis sósu og ætti að slá í gegn á hverju matarborði.
Hér er á ferðinni uppskrift sem smellpassar á degi sem þessum. Kjúklingurinn er í dýrindis sósu og ætti að slá í gegn á hverju matarborði.
Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem verður ábyggilega í uppáhaldi hjá ansi mörgum.
Kjúklingaréttur í ofni með ítölsku ívafi
Fyrir um 3-4 manns
- 6 kjúklingalæri (upplæri)
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 dós ítalskur smurostur (300 g) frá MS
- 400 ml rjómi
- 1 box (180 g) Piccolo tómatar
- Fersk basilika
- Ólífuolía og smjör til steikingar
- Salt, pipar og kjúklingakrydd
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C.
- Brúnið kjúklingalærin upp úr blöndu af ólífuolíu og smjöri við meðalháan hita.
- Kryddið eftir smekk og brúnið vel á báðum hliðum, leggið næst í eldfast mót og útbúið sósuna.
- Saxið laukinn smátt og mýkið á pönnu upp úr smjöri og olíu. Kryddið með salti og pipar.
- Rífið hvítlaukinn saman við laukinn og steikið stutta stund til viðbótar og hellið næst helming rjómans á pönnuna.
- Bætið smurostinum næst saman við og hrærið þar til hann er bráðinn og bætið þá restinni af rjómanum út á og hrærið vel.
- Hellið yfir kjúklingalærin í fatinu, dreifið úr tómötunum yfir allt og bakið í ofni í um 25-30 mínútur.
- Berið fram með ferskri basiliku.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir