Hildur Guðnadóttir er tilnefnd til tvennra Critics Choice-verðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndunum Tár og Women Talking.

Stutt er síðan Hildur var tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna fyrir tónlist sína í Women Talking.
Aðrir tilnefndir til gagnrýnendaverðlaunna Critics Choice í flokknum besta kvikmyndatónlistin eru John Williams, Alexandre Desplat, Justin Hurwitz og Michael Giacchino, að sögn Variety.
Heba Þórisdóttir er sömuleiðis tilnefnd til verðlaunanna í flokknum hár og förðun fyrir kvikmyndina Babylon.
Flestar tilnefningar til verðlaunanna hlaut myndin Everything Everywhere All at Once, eða 14 talsins.
Verðlaunin verða afhent í mars á næsta ári.