Hampiðjan hefur fært björgunarsveitinni Gerpi dráttartaugar úr DynIce ofurtógi að gjöf. Dráttataugarnar eru sérhannaðar fyrir björgunarskipið Hafbjörgu í samstarfi áhafnarmeðlimi og sérfræðinga Hampiðjunnar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hampiðjunni.
Ný Hafbjörg kom til heimahafnar í Neskaupstað sumarið 2021 eftir að hafa verið keypt frá Svíþjóð, en þar bar björgunarskipið nafnið Elsa Johansson og var gert út af sænsku björgunarsamtökunum SSRS. Þá þykir skipið, sem smíðað var 1997, hentugt fyrir þær aðstæður sem skip og áhöfn þarf að sinna hér á landi.
„DYNICE dráttartaugar frá Hampiðjunni hafa sama slitstyrk og togvírar í sama þvermáli, en eru mun léttari og henta afar vel til dráttar í höfnum, á úthafi og við björgunaraðgerðir á sjó og landi. Hjá Hafbjörgu er DYNICE dráttartaugin 200 metra löng og yfirfléttuð hlífðarkápa yfir allt tógið til að verja fyrir núningi á spilum og við hífingar, auk þess teygjuleggir og samsetningarhraðlásar til að tengja teygjuleggina á einfaldan hátt við aðaltógið. Verðmæti gjafarinnar er um ein og hálf milljón króna,“ segir í tilkynningunni.
Helgi Ólason, Bjarni Guðmundsson og Hafliði Hinriksson veittu gjöfinni formlega viðtöku fyrir hönd björgunarsveitarinnar frá Jóni Einari Marteinssyni, rekstrarstjóra Hampiðjunnar í Neskaupstað, á dögunum.
Helgi, einn af skipstjórum björgunarskipsins, segir í tilkynningunni alla hönnun miða að því að auðvelda vinnu á dekki og auka öryggi áhafnar og ljóst að um afar mikilvæga gjöf er að ræða sem mun auka sjóbjörgunarhæfni skipsins.