Kaffitrufflur með Kahlúa-kaffilíkjör eru mættar hér á borðið - ómótstæðilega gott konfekt sem fullkomnar jólahátíðina. Uppskriftin kemur frá Völlu á GRGS.
Kaffitrufflur með Kahlúa-kaffilíkjör eru mættar hér á borðið - ómótstæðilega gott konfekt sem fullkomnar jólahátíðina. Uppskriftin kemur frá Völlu á GRGS.
Dýrindis kaffitrufflur með Kahlúa
- 250 g suðusúkkulaði
- 120 ml rjómi
- 2 msk. Kahlúa-kaffilíkjör
- 1 tsk. skyndikaffiduft
- 1 msk. smjör
- 250 g rjómasúkkulaði
- 50 g suðusúkkulaði
- Kaffibaunir
Aðferð:
- Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál.
- Setjið rjóma, kaffilíkjör, kaffiduft og smjör saman í lítinn pott og hitið að suðu. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mín. Hrærið saman og kælið yfir nótt.
- Takið skálina úr kæli og mótið litlar kúlur. Athugið að það þarf að vinna það svolítið hratt þar sem fyllingin gæti verið fljót að bráðna. Raðið kúlunum á plötu klædda bökunarpappír.
- Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði, temprið súkkulaðið. Dýfið hverri kúlu í súkkulaðið. Mér finnst best að nota tvo litla gaffla í verkið. Látið sem mest af súkkulaði leka af áður en kúlan er sett á bökunarpappírinn.
- Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Dreifið óreglulega yfir hverja kúlu og skreytið með einni kaffibaun. Geymist í kæli.