Marengstertur eiga fullt erindi á jólaborðið og hægt er að útfæra þær á marga vegu – til dæmis eins og jólatré sem þetta. Þetta glæsta tré er með vanillurjóma, hindberjasósu og ferskum berjum sem gefa einstakt bragð, en uppskriftin kemur frá Völlu á GRGS.
Marengstertur eiga fullt erindi á jólaborðið og hægt er að útfæra þær á marga vegu – til dæmis eins og jólatré sem þetta. Þetta glæsta tré er með vanillurjóma, hindberjasósu og ferskum berjum sem gefa einstakt bragð, en uppskriftin kemur frá Völlu á GRGS.
Marengsjólatré með með hindberjasósu og rjóma
Marengsbotnar
- 5-6 eggjahvítur við stofuhita (170 ml)
- 250 g sykur
- 2,5 tsk. maizenamjöl
- 1 1/4 tsk. borðedik
- 1/2 tsk. möndludropar
- Skraut: fersk jarðarber, hindber, flórsykur og fíngert greni
Hindberjasósa
- 200 g frosin hindber
- 70 g frosin jarðarber
- 2 msk. sykur
- Setjið ber í pott ásamt sykri og sjóðið í 5-8 mínútur. Stappið berin að mestu með gaffli á meðan þau sjóða. Maukið þau með töfrasprota og kælið alveg.
Vanillurjómi
- 400 ml rjómi rjómi
- 3 tsk. vanillusykur
- Þeytið saman þar til rjóminn verður nánast stífþeyttur.
Aðferð:
- Byrjið á því að aðskilja eggin. Best er að gera eitt egg í einu og setja eina hvítu í einu í hrærivélarskál. Það er sérlega leiðinlegt að fá örðu af eggjarauðu út í allar hvíturnar ef það skyldi gerast.
- Setjið sykurinn í matvinnsluvél og leyfið henni að vinna í smástund, það er best ef sykurinn er orðinn vel fínn.
- Byrjið á því að þeyta eggjahvíturnar, þeytið í ca 2 mín. og byrjið þá að setja sykurinn út í í smáskömmtum, 1 msk í einu. Þegar allur sykurinn er kominn út í, þeytið þá áfram þar til allur sykurinn er uppleystur. Setjið þá maizenamjöl og edik saman við og þeytið í smástund þar til allt er samlagað.
- Teiknið 7 hringi á bökunarplötu. Þvermálið þarf að vera: 15 cm, 12 cm, 10 cm, 8,5 cm, 6,5 cm, 5 cm og 4 cm. Það er í fínu lagi þótt málin séu ekki nákvæmlega svona, 1 cm til eða frá skiptir engu.
- Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið hringina fallega á plötuna. Ef það verður afgangur af marengsinum, sprautið honum þá bara í það mynstur eða toppa sem ykkur hugnast og geymið til að nota í marengsskál eða skreyta bakkann með. Bakið við 120°C blástur í 1 klst, látið kólna í ofninum, helst yfir nótt.
Samsetning
- Þegar setja á tréð saman er best að gera það bara rétt áður en á að bera það fram. Hafið öll hráefni við höndina þegar þið byrjið.
- Þeytið rjómann með vanillusykrinum og skolið og skerið jarðarber í frekar stóra bita.
- Takið fram fallegan kökudisk eða bakka og setjið smá rjómaslettu á hann miðjan og setjið stærsta marengsinn á hann. Smyrjið lagi af rjóma á botninn og setjið söxuð jarðarber og nokkur hindber á rjómann, toppið með hindberjasósu og setjið að síðustu örlítinn rjóma þar yfir.
- Takið fram grillpinna og stingið honum í miðjan botninn með oddhvassa endann upp. Rennið þá næstu stærð af marengs fyrir neðan á prjóninn, passið að prjóninn fari í miðjan botninn, endurtakið þetta þar til toppurinn er settur efst.
- Skreytið hliðarnar og bakkann með ferskum berjum, setjið einhverja sæta stjörnu á toppinn og dustið yfir með flórsykri.
- Það gæti vafist fyrir einhverjum hvernig skera á tréð. Langbest er bara að skera í það að ofanverðu og nota skeið á móti. Þetta fer mjög fljótlega í stóra gúmmelaðiklessu á bakkanum og er þá borið fram eins og Eton mess-marengsskál.