Enn einn girnilegi eftirrétturinn sem við sjáum á borðum fyrir hólin. Eitt sett sörumús að hætti Lindu Ben - gjörið svo vel.
Enn einn girnilegi eftirrétturinn sem við sjáum á borðum fyrir hólin. Eitt sett sörumús að hætti Lindu Ben - gjörið svo vel.
„Ég mæli með því að gera súkkulaðimúsina með fyrirvara en ekki setja músina ofan á botnana fyrr en samdægurs þar sem þeir blotna með tímanum og það er betra þegar þeir eru svolítið stökkir,“ segir Linda.
Lakkrís-súkkulaðimús að hætti Lindu Ben
- 3 eggjarauður
- 100 g vatn
- 100 g sykur
- 300 g Eitt Sett rjómasúkkulaði
- 100 g mjúkt smjör
- 500 ml rjómi
- 300 g Barón Súkkulaði
Botnakröns
- 3 eggjahvítur
- 1/3 tsk. salt
- 1/3 tsk. cream of tartar
- 50 g sykur
- 200 g flórsykur
- 200 g möndlumjöl
Aðferð:
- Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
- Bræðið Eitt Sett súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
- Geymið kremið inni í ísskáp yfir nótt.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
- Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
- Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
- Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
- Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál. Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.
- Takið u.þ.b. 4-6 botna og brjótið hvern botn í u.þ. 2-4 bita, setjið í glös sem bera á súkkulaðimúsina fram í.
- Setjið súkkulaðimús yfir og sléttið toppinn.
- Bræðið helminginn af Barón súkkulaðinu yfir vatnsbaði, takið súkkulaðið af hitanum og brjótið hinn helminginn af súkkulaðinu út í súkkulaðið. Hrærið varlega saman þar til allt hefur bráðnað, setjið skálina helst ekki aftur ofan í heita vatnið, það er eðlilegt að þetta taki svolitla stund (með því að bræða súkkulaðið svona hægt verður það aftur stökkt þegar það stirðnar aftur).
- Setjið súkkulaði yfir músina með teskeið og sléttið svo varlega með teskeið. Leyfið súkkulaðinu að stirðna og berið svo eftirréttinn fram.