Það berast reglulega fregnir af því í aðdraganda hátíðanna að wellingtonsteikur í Sælkerabúðinni séu uppseldar. Við fengum því Hinrik Lárusson, sem á og rekur Sælkerabúðina ásamt Viktori Erni Andréssyni, til að deila með okkur þessari frægustu wellingtonuppskrift landsins ásamt sínu besta meðlæti.
Það berast reglulega fregnir af því í aðdraganda hátíðanna að wellingtonsteikur í Sælkerabúðinni séu uppseldar. Við fengum því Hinrik Lárusson, sem á og rekur Sælkerabúðina ásamt Viktori Erni Andréssyni, til að deila með okkur þessari frægustu wellingtonuppskrift landsins ásamt sínu besta meðlæti.
Wellington
- 400 g nautalund
- 1 msk. dijon-sinnep
- 200 g sveppir smátt skornir
- 1 skalottlaukur smátt skorinn
- 5 g steinselja smátt skorin
- 5 sneiðar parmaskinka
- 1 msk. brauðrasp
- salt
- pipar
- olía
- smjör
- plastfilma
- eggjarauður
- 20 x 20 cm smjördeig
- 5 x 20 cm smjördeig
Aðferð:
- Kryddið nautalund með salt og pipar eftir smekk, grillið eða steikið á öllum hliðum.
- Penslið dijon-sinnepi á lundina og setjið í kæli í 2-3 klst.
- Hitið pönnu með olíu og smjörklípu og steikið sveppi og skalottlauk þar til fulleldað.
- Bætið næst steinselju út í og smakkið til með salti og pipar.
- Setjið filmu á borðið og leggið parmaskinku ofan á til að mynda ferkantað lag, jafn breitt og nautalundin.
- Dreifið sveppa-duxelle með spaða ofan á parmaskinkuna og stráið brauðraspi jafnt yfir.
- Leggið nautalund í miðjuna á parmaskinkunni og rúllið upp.
- Setjið inn í kæli í plastfilmu í 12 klst.
- Setjið 20 x 20 smjördeigsörk á boðið og nautalundina vafða í parmaskinku og sveppi þar í miðjuna.
- Vefjið upp og skerið aukadeig frá.
- Penslið vel með eggjarauðum og lokið báðum endum.
- Penslið allt smjördeigið með eggjarauðum.
- Skerið út smjördeigsörkina sem er 5 x 20 í munstur að eigin ósk og leggið það yfir smjördeigið.
- Penslið aftur með eggjarauðum.
- Bakið við 190 gráður með blæstri og eldið upp í 43 gráða kjarnhita, látið standa í 30 mínútur.
Hunangsristaðar gulrætur
- 300 g gulrætur
- 50 g smjör
- 40 g hunang
- salt
- olía
Aðferð:
- Setjið gulrætur í eldfast mót, bætið við smjöri, hunangi og smá olíu og kryddið með salti eftir smekk.
- Bakið á 180 gráðum í 20-30 mínútur og hrærið reglulega í þeim svo hunangið brenni ekki.
Hvítlauksristaðir sveppir
- 250 g kjörsveppir
- 1 hvítlauksgeiri smátt skorinn
- 5 g steinselja smátt skorin
- olía
- smjör
- salt
Aðferð:
- Hitið pönnu að háum hita.
- Skerið sveppi til helminga og steikið í olíu þar til eldaðir.
- Bætið smjörklípu og hvítlauk út í pönnuna.
- Takið af hitanum og bætið steinselju út í, kryddið með salti eftir smekk.
Rósmarínkartöflur
- 400 g smælkiskartöflur
- 5 g rósmarín
- 2 hvítlauksgeirar
- salt
- pipar
- olía
- smjör
Aðferð:
- Setjið smælki í eldfast mót og dreifið olíu yfir, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
- Setjið smjörklípu, rósmarín og hvítlauk í eldfast mót og bakið á 190 gráðum í 40 mín.
Hinrik Lárusson eldar Wellington betur en flestir.
Kristinn Magnússon