Gróðurhúsið slær í gegn hjá Vogue

Gróðurhúsið slær í gegn hjá Vogue

Gróðurhúsið í Hveragerði hefur vakið verðskuldaða athygli síðan það opnaði fyrir einu og hálfu ári. Nú hefur áfangastaðurinn slegið svo rækilega í gegn að tískubiblían Vogue beinir sjónum sínum að Gróðurhúsinu. 

Gróðurhúsið slær í gegn hjá Vogue

Suðurland í öllu sínu veldi | 28. desember 2022

Ljósmynd/Baldur Kristjánsson

Gróðurhúsið í Hveragerði hefur vakið verðskuldaða athygli síðan það opnaði fyrir einu og hálfu ári. Nú hefur áfangastaðurinn slegið svo rækilega í gegn að tískubiblían Vogue beinir sjónum sínum að Gróðurhúsinu. 

Gróðurhúsið í Hveragerði hefur vakið verðskuldaða athygli síðan það opnaði fyrir einu og hálfu ári. Nú hefur áfangastaðurinn slegið svo rækilega í gegn að tískubiblían Vogue beinir sjónum sínum að Gróðurhúsinu. 

Í Gróðurhúsinu er hótel en einnig verslanir og veitingastaðir eða eins og blaðamaður Vogue skrifar á góðri íslensku „mathöll“. Hálf­dán Peder­sen sá um heild­ar­hönn­un og - út­lit Gróður­húss­ins og kemur fram að sjálfbærni hafi verið höfð að leiðarljósi við hönnunina. 

Farið er yfir það í Vogue hvað er hægt að gera í Hveragerði og nágrenni og er sérstaklega mælt með Reykjadal, skálanum í Reykjadal sem Háldán hannaði einnig, sem og náttúrulaugarnar, hverina og golfvöllinn. 

Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
mbl.is