Landhelgisgæslan fær heimild til að sekta

Landhelgisgæslan | 28. desember 2022

Landhelgisgæslan fær heimild til að sekta

Ný heildarlög um áhafnir skipa taka gildi um áramótin og eiga þau að skila skýrari regluverki og skilvirkara eftirliti. Þá verður Landhelgisgæslunni veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot gegn ákvæðum laganna.

Landhelgisgæslan fær heimild til að sekta

Landhelgisgæslan | 28. desember 2022

Landhelgisgæslunni verður veitt auknar heimidlir til að sekta fyrir brot …
Landhelgisgæslunni verður veitt auknar heimidlir til að sekta fyrir brot á lögum um áhafnir skipa. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Ný heildarlög um áhafnir skipa taka gildi um áramótin og eiga þau að skila skýrari regluverki og skilvirkara eftirliti. Þá verður Landhelgisgæslunni veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot gegn ákvæðum laganna.

Ný heildarlög um áhafnir skipa taka gildi um áramótin og eiga þau að skila skýrari regluverki og skilvirkara eftirliti. Þá verður Landhelgisgæslunni veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot gegn ákvæðum laganna.

Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir Landhelgisgæslan hafi til þessa þurft að kæra öll mál til lögreglu. „Slíkt ferli hefur verið óþarflega þunglamalegt og dýr umsýsla að einföld brot þurfi alltaf að rata fyrir dóm.“

Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu.
Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þá verður veitt meðal annars heimild til að sekta aðila fyrir að stjórna skemmtibát án tilskilinna réttinda, fyrir að brjóta reglur um lögskráningu, svo sem að lögskrá rétt og vera með réttar tryggingar áður en siglt er af stað. Auk þess að sekta skipstjóra fyrir að fela öðrum en þeim sem hefur réttindi til þess hlutverk um borð í skipi, til dæmis ábyrgð á siglingavakt í brú.

Svo verður heimilt að sekta útgerð ef hún getur ekki framvísað heilbrigðisvottorði fyrir alla skipverja þegar innleiddar hafa verið viðeigandi heilbrigðiskröfur fyrir allar stöður.

Ítarlega var fjallað um nýju lögin í desemberútgáfu 200 mílna.

mbl.is