„Litlar pavlovur eru svo fallegar, það er eitthvað við þær, glansandi marengsinn, mjúk miðjan og svo fylling sem gefur pavlovunni karakter. Að þessu sinni er stjarnan vanillubúðingurinn frá Royal,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlum og smjöri um þessar ógnarfögru pavlóvur.

„Mér persónulega finnst bragðbættur rjómi ekkert sérstaklega góður þegar búið er að bæta sykri og fleira í hann. Aftur á móti þegar maður blandar rjóma við mjólkina og búðinginn verður hann svo kremkenndur og dásamlega bragðgóður að ég gæti setið með skálina eintóma. Frábær tilbreyting frá rjómanum eða smjörkremi og hægt að leika sér með hann á kökur, bollur og allt það sem hugurinn girnist.“
8 stk.
Stillið ofn á 100°c. Aðskiljið eggin, vigtið eggjahvíturnar og setjið í hrærivélina ásamt þeytara. Setjið vélina af stað og á meðan vigtið þið sykurinn og bætið honum saman við eggjahvíturnar í nokkrum skömmtum. Stífþeytið marengsinn, þegar hann er orðinn stífþeyttur bætið þá maizenamjöli og ediki saman við og hrærið létt í 20-30 sek.
Gott er að setja marengsinn í sprautupoka með hringlaga stút og sprauta á bökunarpappírsklædda plötu. Áætlið að hver pavlova sé um 7-8 cm í þvermál og 5-6 cm á hæð.
Þegar búið að sprauta þá á plötuna er gott að taka skeið, gera smá brunn í miðjunni og slétta brúnirnar. Gaman er að leika sér með kantana, hvernig áferð maður vill.
Bakið í 75 mín., gott er að slökkva á ofninum og opna hann aðeins og leyfa þeim að kólna þannig.
Blandið öllu saman í skál og hrærið vel, helst með rafmagnsþeytara. Setjið fyllinguna í sprautupoka með hringstút.
Byrjið á því að taka matskeið og brjóta aðeins ofan í miðjunni á pavlovunni til að búa til aðeins meira rými fyrir fyllingu. Setjið þá eina matskeið af jarðarberjasultu í miðjuna á hverri pavlovu. Takið þá vanillufyllinguna og sprautið ofan í og vel ofan á líka, endurtakið við allar.
Þá er bara að skera niður jarðarber og bláber og skreyta, bræða smá rjómasúkkulaði og dreifa yfir.
Ef þær eru ekki bornar fram strax er best að geyma þær í kæli.