Hér er á ferðinni krónhjörtur sem er einstaklega skemmtilegt og bragðgott kjöt. Mælum 100% með því og það bragðaðist hreint dásamlega. Hér eru með tvær sósur; annars vegar gráðaostasósa sem er köld og svo villisveppasósa sem engan svíkur.
Hér er á ferðinni krónhjörtur sem er einstaklega skemmtilegt og bragðgott kjöt. Mælum 100% með því og það bragðaðist hreint dásamlega. Hér eru með tvær sósur; annars vegar gráðaostasósa sem er köld og svo villisveppasósa sem engan svíkur.
Krónhjartarlund með villisveppasósu
- Krónhjörtur
- timian
- smjör
- hvítlaukur
Aðferð:
- Kjötið er tekið út úr kæli um 3-4 tímum fyrir eldun svo það sé ekki kalt þegar það fer á pönnuna.
- Kryddað með salti og pipar.
- Þá er það sett á mjög heita pönnu og steikt þar til góð húð myndast á kjötinu.
- Þá er því snúið við og smjöri bætt á pönnuna ásamt timíangreinum og hvítlauk.
- Sett í eldfast mót og inn í ofn á 180°C í 5 mínútur.
- Þá er kjötið tekið út úr ofninum í 5 mínútur og síðan sett aftur inn í ofn í 5 mínútur.
- Að lokum er kjötið látið hvíla í að minnsta kosti 5 mínútur áður en það er skorið.
Gráðaostasósa
- 150 g sýrður rjómi
- 150 g majones
- 100 g gráðaostur
- safi úr hálfri sítrónu
- 1 tsk. hunang
- salt og pipar
Aðferð:
- Allt nema salt og pipar sett saman í matvinnsluvél og unnið þar til sósan er kekkjalaus. Smakkað til með salti og pipar.
Villisveppaostasósa
- 1 stk. villisveppaostur
- ½ stk. piparostur
- 500 ml matreiðslurjómi
- 1 tsk. villikraftur vatn
Aðferð:
- Rjóminn hitaður í potti. Á meðan eru ostarnir rifnir niður á grófu rifjárni og bætt út í heitan rjómann.
- Hrært þar til ostarnir eru alveg bráðnaðir og smakkað til með villikrafti. Ef sósan er of þykk má þynna hana með vatni.