Hér erum við með forrétt sem ætti að falla í kramið hjá flestum enda erum við að tala um hörpuskel, pankó, beikon og geggjaða hvítlaukssósu.
Hér erum við með forrétt sem ætti að falla í kramið hjá flestum enda erum við að tala um hörpuskel, pankó, beikon og geggjaða hvítlaukssósu.
Hörpuskel
- hörpuskel
- olía
- smjör
- salt
- sítrónusafi
Aðferð:
- Hörpuskel er þídd og þerruð vel.
- Þá er panna hituð upp með olíunni og hörpuskelin sett á heita pönnuna og söltuð.
- Steikt í um það bil 45 sekúndur, þá er henni snúið við og smjöri bætt á pönnuna, hörpuskel söltuð aftur og steikt í aðrar 45 sekúndur.
- Gott er að ausa smjörinu aðeins yfir hana meðan hún er steikt.
- Að lokum er hún tekin af pönnunni og pínu sítrónusafi kreistur yfir.
Ávaxtasalsa
- 1 dl gúrka
- 1 dl mangó
- 1½ dl granatepli
- ½ dl rauðlaukur
- ½ dl steinselja
- sítrónusafi
- salt og pipar
Aðferð:
- Gúrka, mangó, rauðlaukur og steinselja skorin smátt og blandað saman í skál með granateplinu, sítrónusafi kreistur yfir og smakkað til með salti og pipar.
Hvítlaukssósa
- 2 dl majónes
- 2 dl sýrður rjómi
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 tsk. ítölsk hvítlauksblanda
- 1 msk. hunang
- 1-2 tsk. sítrónusafi
- salt
Aðferð:
- Hvítlaukurinn skorinn smátt og hrært saman við öll hin innihaldsefnin í skál, smakkað til með salti.
- Sósan verður betri ef hún bíður í klukkutíma fyrir notkun.
Beikon-panko-raspur
- 6 sneiðar beikon
- 70 g panko-raspur
Aðferð:
- Beikonsneiðar skornar smátt og steiktar á pönnu. Þegar bitarnir eru orðnir stökkir eru þeir teknir af pönnunni en reynt að halda mestu af fitunni eftir.
- Þá er raspinum bætt út á pönnuna og steiktur upp úr beikonfitunni á lágum hita þar til hann er gullinbrúnn.