Gott meðlæti toppar máltíðina og þessir sveppir eru í algjörum keppnisgæðum!
Gott meðlæti toppar máltíðina og þessir sveppir eru í algjörum keppnisgæðum!
Fylltir sveppir
- 8 stórir sveppir
- 100 g rjómaostur með graslauk og lauk
- 25 g rifinn parmesan
- ½ tsk. hvítlauksduft
- pipar
- 6 sneiðar beikon
Aðferð:
- Stilkarnir teknir úr sveppunum (gott er að nýta þá í sósuna) og smá olíu sáldrað yfir þá.
- Beikonið steikt þar til stökkt og þá skorið smátt. Rjómaosti, parmesanosti, hvítlauksdufti, pipar og beikoni blandað saman og sveppirnir fylltir með blöndunni og bakað í ofni á 180°C í um 15 mínútur.