Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

Uppskriftir | 2. janúar 2023

„Hér höfum við einstaklega gott heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum. Það er stökkt og bragðgott, inniheldur alveg fullt af hnetum og fræjum sem eru holl fyrir okkur. Það inniheldur aðeins einn dl hlynsíróp sem verður að teljast nokkuð lítið miðað við að margt keypt granóla inniheldur talsvert meiri sykur. Ristuðu kókosflögurnar og möndlurnar gera það nefnilega sætt og bragðgott frá náttúrunnar hendi,“ segir Linda Ben um þetta dýrindis granóla sem er upplagt að gera.

mbl.is/Linda Ben

„Ég elska þetta granóla til dæmis með skyri. Ég hef verið að borða veganskyrið frá Veru Örnudóttur undanfarið og líkar það mjög vel! Það er bragðgott, inniheldur lítinn viðbættan sykur og er prótínríkt. Það er að sjálfsögðu vegan eins og aðrar vörur frá Veru.“

Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

  • 500 g hafrar
  • 100 g möndlur
  • 80 g valhnetur
  • 50 g hörfræ
  • 100 g ristaðar kókosflögur
  • 1/4 tsk kanill
  • 100 g kókosolía
  • 1 dl hlynsíróp

Borið fram með

  • bláberjahafraskyri frá Veru Örnudóttur
  • bláberjum

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C.
  2. Saxið möndlurnar og valhneturnar gróft.
  3. Setjið hafra, söxuðu möndlurnar, valhneturnar, hörfræ og kókosflögur í skál, setjið örlítið af kanil yfir. Blandið öllu vel saman.
  4. Bræðið kókosolíuna og hellið yfir ásamt hlynsírópi, blandið öllu vel saman.
  5. Setjið smjörpappír á ofnskúffu og hellið blöndunni á smjörpappírinn. Takið stóran spaða og pressið blönduna þétt niður. Bakið í ofni í u.þ.b. 20 mín. eða þar til blandan byrjar að verða gullinbrún að lit.
  6. Leyfið blöndunni að kólna alveg í ofnskúffunni að stofuhita. Takið svo spaða og brjótið granólað létt í sundur og setjið í ílát.
  7. Granólað geymist í lokuðu íláti í 2-3 vikur.
  8. Ég mæli með að bera granólað fram með bláberjahafraskyri frá Veru Örnudóttur og ferskum bláberjum.
mbl.is/Linda Ben
mbl.is/Linda Ben
mbl.is