„Það er í raun rosalega lítið sem ég get gert í dag af því trúnaðarráðið er í rauninni að mestu leyti handvalið af Sólveigu Önnu,“ segir Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari Eflingar, spurð hvort hún ætli að gera eitthvað til að takast á við framkomu stjórnar Eflingar í hennar garð.

Ólöf greindi frá því í gær að þrátt fyrir að eiga sæti í samninganefnd Eflingar, samkvæmt lögum Eflingar, sem ritari stjórnar, hefur Ólöf ekki fengið að sitja á fundum eða taka þátt í vinnu nefndarinnar.
Þá segir einnig í lögum Eflingar að trúnaðarráð félagsins fari með lagabrot og geti veitt áminningu eða vikið félagsmanni úr félaginu „ef sakir eru miklar eða brot er ítrekað sem áminnt hefur verið fyrir áður“.
Trúnaðarráðið skipar stjórn félagsins ásamt 115 fulltrúum félagsmanna.
„Hún [Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar] náttúrlega hefur fólk þar sem kýs með henni,“ segir Ólöf og bætir við að það sé því fátt sem hún geti gert í stöðunni annað en að mæta á þá fundi sem hún viti af.
Ólöf segir að þegar hún hefur haft upplýsingar um hvar og hvenær fundir samninganefndarinnar séu og hafi ætlað að vera viðstödd þá, þá hafi henni verið vísað á dyr. Hún er þó enn boðuð á fundi stjórnar Eflingar.
Spurð hvernig það sé að starfa í stjórninni, þegar er komið sé svona fram við hana, segir Ólöf það vera erfitt.
„Þetta er leiðinlegt. Mitt hlutverk er nokkuð skýrt. Ég á sæti í stjórninni,“ segir hún og bætir við að hún reyni að sinna sínu hlutverki eftir bestu getu.
„Það er rosalega erfitt þegar formaður félagsins – sem á auðvitað að standa vörð um réttindi, ekki bara þeirra sem henni líkar vel við, heldur réttindi allra félagsmanna – að hún sjálf sé að brjóta lög félagsmanna sem að við skrifum og við samþykkjum til þess að halda einum félagsmanni utan við sitt hlutverk.“
Áttu þér bakland innan Eflingar?
„Ég hef stuðning en kannski ekki í þeim ráðum og nefndum sem hún [Sólveig Anna] hefur fengið að handvelja í.“