Dreymir um verðlaun með landsliðinu

Synir Íslands | 18. janúar 2023

Dreymir um verðlaun með landsliðinu

„Það er alltaf skemmtilegast að spila þegar það er ákveðin pressa til staðar,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður ís­lenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Sigvaldi, sem er 28 ára gamall, lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2018 en hann hefur verið lykilmaður í íslenska liðinu undanfarin ár.

„Draumurinn er að vinna til verðlauna með íslenska landsliðinu,“ sagði Sigvaldi.

„Það er það stærsta sem maður gæti upplifað á ferlinum,“ bætti hann við.

Sigvaldi Björn er í aðalhlutverki í þriðja þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir neðan eða inn á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

Sigvaldi Björn Guðjónsson og Egon Hanusz í leik Íslands og …
Sigvaldi Björn Guðjónsson og Egon Hanusz í leik Íslands og Ungverjalands á HM. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is