Sonur Akbar Hashemi Rafsanjani, fyrrverandi forseta Íran, hefur verið látinn laus eftir að hafa setið í fangelsi í sjö ár, af tíu ára fangelsisdómi, fyrir fjársvik.

Mehdi Hashemi, sem er 53 ára, gekk út úr Theran Evin fangelsinu seint í gærkvöldi samkvæmt lögmanni hans, Vahid Abolmaali.
Samkvæmt upplýsingum frá fangelsismálayfirvöldum í Íran er frelsi hans nú „skilyrðum háð“.
Hashemi var dæmdur fyrir fjársvik, fjárdrátt og brot gegn þjóðaröryggi í ágúst árið 2015. Ásakanir sem margir telja hafa verið pólitískar ofsóknir.
Hashemi hafði starfað sem stjórnandi í olíufyrirtæki í Íran um miðjan fyrsta áratug þessarar aldar, á sama tíma og grunur leikur um að norska olíufélagið Statoil og franska olíufélagið Total eru talin hafa greitt mútur fyrir aðgang að olíubirgðum Íran.
Árið 2018 féll dómur í glæpadómstól í París hvar Total var fundið sekt fyrir „spillingargreiðslur til erlendra aðila“ fyrir greiðslur til Hashemi.