„Ég var mjög oft í æfingahópum fyrir stórmót,“ sagði Bjarki Már Elísson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.

Bjarki Már, sem er 32 ára gamall, lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2012 en hann fór á sitt fyrsta stórmót með landsliðinu fimm árum síðar, árið 2017.
„Þjálfarinn dró mig svo til hliðar og sagði bara að ég yrði eftir en að ég ætti að vera klár ef eitthvað kæmi upp á,“ sagði Bjarki Már.
„Svo var aldrei hringt í mann en maður á sex stórmót í dag og vonandi fleiri í framtíðinni,“ bætti Bjarki Már við.