Formleg ákæra gefin út

Alec Baldwin | 1. febrúar 2023

Formleg ákæra gefin út

Leikarinn Alec Baldwin var í gær formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Er hann ákærður fyrir að hafa orðið valdur að dauða tökumannsins Halynu Hutchins sem lést við tökur á kvikmyndinni Rust.

Formleg ákæra gefin út

Alec Baldwin | 1. febrúar 2023

Formleg ákæra hefur verið gefin út á hendur Alec Baldwins …
Formleg ákæra hefur verið gefin út á hendur Alec Baldwins vegna dauða Halynu Hutchins. AFP/Skrifstofa lögreglunnar í Santa Fe

Leikarinn Alec Baldwin var í gær formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Er hann ákærður fyrir að hafa orðið valdur að dauða tökumannsins Halynu Hutchins sem lést við tökur á kvikmyndinni Rust.

Leikarinn Alec Baldwin var í gær formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Er hann ákærður fyrir að hafa orðið valdur að dauða tökumannsins Halynu Hutchins sem lést við tökur á kvikmyndinni Rust.

Ákæran var gefin út í New Mexíkó-ríki í gær en áður hafði komið fram í fréttum að saksóknari í umdæminu hyggðist leggja fram ákæruna gegn leikaranum vegna manndráps af gáleysi.

„Í dag stigum við enn eitt mikilvægt skref í átt að réttæti fyrir Halynu Hutchins,“ sagði Mary Carmack-Altwies, saksóknari í New Mexíkó þegar ákæran var gefin út.

Upptekinn í símanum

Fram kemur að Baldwin hafi verið annars hugar þegar hann átti að vera að læra um öryggisatriði er tengdust skotvopnum sem notuð voru við tökurnar. Hafi hann verið í símanum að tala við fjölskyldu sína.

Hann hafi aðeins eytt um hálfri klukkustund á námskeiðinu sem stóð yfir í klukkustund. Hanna Gutierrez-Reed var ábyrgðarmaður skotvopna á tökustað. Hún var líka ákærð fyrir manndráp af gáleysi á sama tíma og Baldwin.

Ef þau verða sakfelld eiga þau yfir höfði sér allt að 18 mánaða fangelsisdóm og 5 þúsund bandaríkjadala sekt. Vegna þess að skotvopn koma við sögu í málinu gætu þau fengið allt upp í fimm ára fangelsisdóm.

Baldwin hefur ítrekað í fjölmiðlum og vitnisburði sínum að honum hafi verið sagt að byssan væri ekki hlaðin og að hann hafi ekki tekið í gikkinn.

mbl.is