Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra, hefur verið boðaður á fundi fjárlaganefndar og utanríkismálanefndar sem fara fram fyrir hádegi í dag, til að ræða fyrirhugaða sölu á björgunar- og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF.

Fundur fjárlaganefndar hefst klukkan 8.30 og fundur utanríkismálanefndar hefst skömmu síðar, eða klukkan 8.45.
Í gær greindi Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, í samtali við mbl.is að hann hefði boðað nefndarfund í dag til að ræða áform dómsmálaráðuneytisins. Hefur hann stefnt dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar þangað.