Leikkonan Viola Davis varð í kvöld 18. manneskjan til að verða svokallaður EGOT-verðlaunahafi þegar hún hlaut Grammy-verðlaun fyrir hljóðbók sína Finding Me.

EGOT-verðlaunahafar eru þau sem fengið hafa öll stóru verðlaunin í skemmtanabransanum Bandaríkjunum, það er, Emmy-, Grammy-, Tony- og Óskarsverðlaun.
„Ég skrifaði þessa bók til að heiðra hina 6 ára gömlu Violu. Til að heiðra líf hennar, gleði hennar, áföll og allt,“ sagði Davis er hún tók á móti verðlaununum.
Davis vann til Óskarsverðlauna árið 2016 í flokki leikkonu í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Fences.
Emmy-verðlaunin vann hún fyrir þættina How To Get Away With Murder. Hún hefur unnið tvenn Tony-verðlaun fyrir hlutverk sín í leikritunum King Hedley II og Fences.
Á meðal hinna 17 EGOT-verðlaunahafanna eru Sir John Gielgud, Rita Moreno, Andrew Lloyd Webber, John Legend og Jennifer Hudson.
Grammy-verðlaunin verða afhent í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt.