Gullver landaði snemma vegna hráefnisskorts

Síldarvinnslan | 13. febrúar 2023

„Þetta var stuttur túr, einungis rúmir tveir sólarhringar á sjó,“ segir Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver NS, í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Ísfisktogarinn landaði 55 tonnum á Seyðisfirði á föstudaginn var.

Gullver kom snemma til löndunar þar sem vantaði hráefni í …
Gullver kom snemma til löndunar þar sem vantaði hráefni í vinnsluna á Seyðisfirði. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Ómar Bogasaon

„Þetta var stuttur túr, einungis rúmir tveir sólarhringar á sjó,“ segir Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver NS, í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Ísfisktogarinn landaði 55 tonnum á Seyðisfirði á föstudaginn var.

„Þetta var stuttur túr, einungis rúmir tveir sólarhringar á sjó,“ segir Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver NS, í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Ísfisktogarinn landaði 55 tonnum á Seyðisfirði á föstudaginn var.

„Upphaflega áttum við að landa á mánudag en það vantaði fisk í vinnsluna og því komum við fyrr til löndunar,“ útskýrir Þórhallur.

Hann segir jafnframt að veður hafi verið með besta móti þegar skipið var á veiðum á fimmtudag. „Veiðin gekk vel og aflinn var nær eingöngu þorskur og ýsa. Við byrjuðum í Berufjarðarálnum en færðum okkur síðan í Litladýpið.“

Gullver hélt á ný til veiða um hádegi í gær.

mbl.is