Knattspyrnumaðurinn Christian Atsu fannst látinn undir rústum byggingar í Hatay í Tyrklandi eftir jarðskjáltann sem reið yfir fyrr í mánuðinum. Þetta staðfestir Murat Uzunmehmet, umboðsmaður hans.

Atsu er fyrrverandi leikmaður ensku knattspyrnuliðanna Newcastle, Everton og Chelsea en hann lék síðast fyrir Hatayspor í Tyrklandi.
Degi eftir að skjálftinn reið yfir sagði Mustafa Özat, varaforseti Hatayspor, að knattspyrnumaðurinn hefði fundist á lífi en síðar kom í ljós að hann fór með rangt mál.
Atsu gekk ungur að árum til liðs við Chelsea og var lánaður til Everton tímabilið 2014-2015 og til Newcastle tímabilið 2016-2017.
Hann hjálpaði Newcastle að komast upp í ensku úrvalsdeildina eftir eitt tímabil í B-deildinni og spilaði síðan með félaginu áfram til ársins 2021 þegar hann fór til Sádi-Arabíu, og þaðan til Tyrklands síðasta sumar. Atsu hefur leikið 65 landsleiki fyrir Gana.