Krísuteymi verður á tánum þegar Óskarsverðlaunin verða afhent hinn 12. mars næstkomandi. Er það gert til þess að bregðast megi skjótar við hinum ýmsu uppákomum.

Á síðasta ári varð uppi fótur og fit á verðlaunahátíðinni þegar leikarinn Will Smith hljóp upp á svið og sló Chris Rock upp á sviði í beinni útsendingu.
Framkvæmdastjóri Óskarsverðlaunanna, Bill Kramer, sagði í viðtali við tímaritið Times að teymið myndi setja upp fjölda sviðsmynda sem gætu komið upp í þeim tilgangi að vera viðbúin öllu.
„Af því að á síðasta ári komumst við að því að ýmislegt getur gerst á Óskarnum,“ sagði Kramer. Nú er ætlunin að bregðast fyrr við.
Viðbrögð Akademíunnar í kjölfar löðrungsins fræga hafa verið gagnrýnd. Smith fékk að halda sæti sínu á hátíðinni og skömmu seinna fór hann upp á svið að taka við sínum fyrstu Óskarsverðlaunum fyrir hlutverk sitt í myndinni King Richard.
Seinna skráði Smith sig úr Akademíunni, en það var ekki fyrr en nokkrum dögum seinna að Smith var bannað að mæta á hátíðina næstu tíu árin.
Kramer segir núna að viðbrögð við uppákomum sem þessum verði héðan í frá allt öðruvísi. „Vonum samt að það komi ekkert upp á og að við þurfum ekki að nota þessar áætlanir. En við erum búin að teikna upp áætlanir sem við getum útfært,“ sagði Kramer.