Oft á tíðum hugar maður lítið að því í hvaða stellingu best er að sofa í. Maður vill bara sofna. Margir sofa í sömu stellingunni næturlangt á meðan aðrir eru sífellt að bylta sér. Allt er þetta eðlilegt svo lengi sem maður vaknar ekki aumur.

Það er margt sem gerist í líkamanum á meðan hann sefur. Heilinn er að vinna úr upplýsingum og meltingarkerfið er að melta mat svo fátt eitt sé nefnt. Rannsóknir hafa sýnt að stellingin sem maður sefur í getur aðstoðað líkamann að gera allt sem hann þarf að gera á nóttunni.
Það að sofa á vinstri hliðinni er sagt sérstaklega góð stelling fyrir líkamann.
Maginn er vinstramegin í kviðarholinu og þegar maður liggur á vinstri hliðinni þá kemst maturinn mun greiðlegar í gegn. Þá kemur það í veg fyrir að maginn liggi á brisinu sem styður við flæði meltingarensímanna.
Þyngdaraflið hjálpar hjartanu að dæla blóði betur. Ósæðin ber blóðið frá hjartanu til líkamans og hún sveigir til vinstri. Það setur því minna álag á hjartað að liggja á vinstri hliðinni.
Rannsóknir hafa sýnt að það að sofa á vinstri hliðinni minnkar brjóstsviða. Kannski vegna staðsetningu magans vinstramegin við kviðarholið.
Meðgöngu fylgir mikilli aukningu á blóðflæði um líkamann. Það eykur því álag á ýmis líffæri. Það að liggja á vinstri hliðinni minnkar álagið á t.d. hrygginn, hjartað og önnur líffæri.
Þá eru nefndir fleiri kostir eins og t.d. minni hrotur, minni bakverkir og fleira í þeim dúr. Ef maður er óvanur að sofa á vinstri hliðinni þá eru til ýmis ráð til þess að láta það vera sem þægilegast. Það má t.d. setja kodda á milli fæturna til þess að halda manni í réttri stellingu.