Leikkonan Zendaya vakti athygli á Screen Actors Guild-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Bandaríkjunum í gærkvöldi þegar hún mætti í bleikum kjól með rósum. Einna helst minnir kjóll leikkonunnar á fallega tertu með rósum úr smjörkremi.

Kjóllinn er þó ekki úr bragðgóðu smjörkremi heldur er hann frá Valentino Haute Couture. 190 rósir skreyta kjólinn og sjálf skreytti Zendaya sig með Bulgari skartgripum.
Kvikmyndin Everthing Everywhere All At Once var ótvíræður sigurvegari kvöldsins en hún var valin besta myndin og Michelle Yeoh var valin besta leikkona ársins í aðalhlutverki.
Smartland tók saman brot af því besta af rauða dreglinum í gærkvöldi.