Bæði New York Times og Vanity Fair spá því að stutta teiknimyndini My Year of Dicks hljóti Óskarsverðlaunin á sunnudagskvöld. Verðlaunin verða afhent á sunnudagskvöld í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Variety og Deadline spá hins vegar því að The Boy, the Mole, the Fox and the Horse hljóti verðlaunin í flokki stuttra teiknimynda.
Sara Gunnarsdóttir er leikstjóri My Year of Dick og klippir hana líka, en hún vann hana ásamt Pamelu Ribbon sem er höfundur hennar.
Myndin er rómantísk gamansería sem fjallar um fimmtán ára unglingsstelpu sem hefur sett sér það markmið að missa meydóminn.
Kvikmyndinni Everything Everywhere All at Once er með flestar tilnefningar til verðlaunanna í ár, alls ellefu, en myndin hefur átt góðu gengi að fagna á verðlaunahátíðum undanfarnar vikur.
Spám NYT, VF og Variety ber saman um að Everything Everywhere All at Once verði valin besta myndin á Óskarnum, en Deadline telur að þýska myndin Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum (þ. Im Westen nichts Neues) fari með sigur af hólmi í þeim flokki.
Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum hefur sömuleiðis átt góðu gengi að fagna á verðlaunahátíðum undanfarnar vikur en hlaut myndin alls sjö tilnefningar til Óskarsverðlaunna.