Kvikmyndagerðarmaðurinn Gunnar Heiðar starfaði við gerð teiknimyndarinnar Gosa sem var valin besta teiknimyndin í fullri lengd á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í Bandaríkjunum í nótt.

Gunnar Heiðar starfaði í kvikmyndtökuteyminu (e. lighting cameraperson). Hinn margverðlaunaði Guillermo del Toro er aðalmaðurinn á bak við myndina og leikstýrði myndinni ásamt Mark Gustafson. Del Toro skrifaði einnig handritið að myndinni ásamt Patrick McHale. Sagan er lauslega byggð á sögunni um Gosa. Myndin er á Netflix.
Þetta voru ekki fyrstu Óskarsverðlaun del Toro en mexíkóski leikstjórinn vann verðlaunin einnig fyrir myndina The Shape of Water. Hann er fyrsti leikstjórinn til að hljóta verðlaun fyrir bestu kvikmynd og leikstjórn og bestu teiknimynd.