Margir hafa eflaust séð myndskeið af óþægilegasta atviki Óskarsverðlaunanna sem hefur verið í dreifingu á samfélags- og fjölmiðlum síðustu daga. Fyrirsætan Ashley Graham virðist ekki kippa sér upp við fjölmiðlaumfjöllunina og birti nektarmynd af sér á Instagram-reikningi sínum.

Í myndskeiðinu sem um ræðir reynir Graham að spjalla við breska leikarann Hugh Grant sem virðist hafa farið öfugu megin fram úr rúminu. Hún reynir að spyrja hann nokkurra algengra spurninga sem heyrast ósjaldan á rauða dreglinum, en leikarinn vildi hreinlega ekki segja henni neitt.
Graham hefur hlotið mikið hrós fyrir það hvernig hún brást við framkomu leikarans. Þrátt fyrir stutt svör og undarlega hegðun Grant hélt hún sínu stiki. „Veistu hvað, mamma mín sagði alltaf við mig að ég ætti að drekkja fólki í góðvild, þannig þar hafið þið það,“ sagði hún um atvikið í viðtali við TMZ.
Sólarhringi síðar birti fyrirsætan myndaröð frá helginni á Instagram-reikningi sínum. Fremst í færslunni birti hún nektarmynd af sér þar sem hún heldur á ljósri drapplitaðri Etro-tösku.