Ástralska leikkonan, Rebel Wilson var öll hin stórglæsilegasta þegar hún mætti á rauða dregilinn á Óskarsverðlaununum, ásamt unnustu sinni, Ramónu Agruma. Wilson klæddist kjól sem hún hefur klæðst áður, hannaður af Jason Wu. Hún mætti í einum og sama kjólnum á hátíðina árið 2020, þar sem hún steig á svið sem kynnir og einnig í Vanity Fair partýið að hátíðinni lokinni.

Aðdáendur Pitch Perfect stjörnunnar voru fljótir að hrósa henni hástert á samfélagsmiðlum, bæði fyrir það að endurnýta kjólinn og sömuleiðis fyrir að sýna jákvætt fordæmi.
Wilson tók sig til í nóvember 2020 og hóf það sem hún kallaði „ár heilsunnar“ og endaði á því að missa um 30 kg. Hún vildi léttast til þess að auka möguleika sína á því að ganga með barn. Wilson endaði þrátt fyrir það á að eignast dóttur, Royce Lillian með hjálp staðgöngumóður.
Það er óljóst, hvers konar breytingar þurfti að gera á kjólnum en sama hvað þá var Wilson jafnglæsileg í þessari Jason Wu hönnun, 2020 og 2023.