Heimila samruna Ísfélagsins og Ramma

Ísfélag hf | 18. mars 2023

Heimila samruna Ísfélagsins og Ramma

Samkeppniseftirlitið (SKE) telur ekki forsendur til íhlutunar vegna  samruna Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma. Tilkynnt var um samruna útgerðarfélaganna í lok desember sl.

Heimila samruna Ísfélagsins og Ramma

Ísfélag hf | 18. mars 2023

Sigurður VE er eitt af skipum Ísfélagsins.
Sigurður VE er eitt af skipum Ísfélagsins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Samkeppniseftirlitið (SKE) telur ekki forsendur til íhlutunar vegna  samruna Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma. Tilkynnt var um samruna útgerðarfélaganna í lok desember sl.

Samkeppniseftirlitið (SKE) telur ekki forsendur til íhlutunar vegna  samruna Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma. Tilkynnt var um samruna útgerðarfélaganna í lok desember sl.

Sameinað félag mun heita Ísfélagið hf. Morgunblaðið greindi frá því, þegar tilkynnt var um fyrirhugaðan samruna, að jafnframt stæði til að skrá félagið á markað.

Í niðurstöðu SKE kemur fram að ekki séu vísbendingar fyrir hendi til þess að ætla að markaðsráðandi staða myndist með samrunanum eða að samkeppni raskist að öðru leyti.

Samtals fara fyrirtækin með um 8% af aflahludeild í þorskigildum, sem er undir þeim 12% sem hámark gildir um. Sameinað félag mun þó fara yfir aflahlutdeild í loðnu en fyrirtækin tvö hafa þegar sagst ætla að gera ráðstafanir til að minnka þá hlutdeild.

Fiskistofa gaf einnig álit í málinu og gerði ekki athugasemdir við samrunann.

mbl.is