„Góð sósa er lykilatriði þegar bera á fram góða steik. Það er að minnsta kosti okkar skoðun hér á þessu heimil enda erum við öll sósusjúk!“ segir matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem tikkar í öll box. Lambahryggur með kryddhjúp hljómar hreint ótrúlega vel og smakkast enn betur.
„Góð sósa er lykilatriði þegar bera á fram góða steik. Það er að minnsta kosti okkar skoðun hér á þessu heimil enda erum við öll sósusjúk!“ segir matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem tikkar í öll box. Lambahryggur með kryddhjúp hljómar hreint ótrúlega vel og smakkast enn betur.
Lambahryggur með kryddhjúp
Fyrir um 8 manns
Lambahryggur eldun
- Lambahryggur um 2,8 kg
- 1 msk. Dijon sinnep
- 1 msk. hunang
- Bezt á lambið krydd
- 130 g brauðraspur
- 1 msk. saxað timian
- 1 msk. saxað rósmarín
- 2 hvítlauksgeirar (rifnir)
- 60 g smjör við stofuhita
- 500 ml vatn
Aðfeðr:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Þerrið hrygginn og skerið í hann grunnt mynstur (á skinnið).
- Hrærið sinnepi og hunangi næst saman og penslið yfir allan hrygginn og kryddið síðan með vel af Bezt á lambið kryddi.
- Setjið brauðrasp, timian, rósmarín, hvítlauk og smjör saman í aðra skál og nuddið saman með fingrunum þar til smjörið hefur samlagast raspinu og úr verður nokkurs konar kurl.
- Dreifið kryddhjúpnum jafnt yfir hrygginn og þjappið aðeins, alveg niður hliðarnar.
- Setjið hrygginn í stóran steikarpott og inn í ofn í 15 mínútur án þess að hafa lokið á. Lækkið þá hitann niður í 160°C, hellið vatninu í botninn, setjið lokið á pottinn og eldið þannig í 75 mínútur. Sigtið soðið þá úr pottinum fyrir sósuna.
- Hækkið hitann að nýju í 200°C, takið lokið af og leyfið að eldast þannig í 15 mínútur. Hvílið síðan kjötið í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið skerið í það.
Sósa með lambahrygg
- 50 g smjör
- 250 g kastaníusveppir
- Soðið úr steikarfatinu
- 150 ml vatn
- 250 ml rjómi
- 1 pk. Toro sveppasósa
- 1 pk. Toro steikarsósa
- 1 msk. fljótandi kjötkraftur
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til þeir mýkjast, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
- Hellið næst soði og vatni í pottinn, hrærið sósubréfin saman við og bætið rjómanum saman við í nokkrum skömmtum.
- Smakkið til með krafti, salti og pipar og leyfið sósunni að malla við lágan hita þar til hryggurinn er tilbúinn.
Bakaðar gulrætur
- 500 g gulrætur
- 3 msk. ólífuolía
- 1 tsk. rósmarín (saxað)
- 1 tsk. timian (saxað)
- Salt og pipar
- 50 g pekanhnetur (saxaðar)
- 2 msk. sýróp
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C.
- Flysjið gulræturnar og skerið í strimla.
- Veltið upp úr ólífuolíu og kryddum, raðið á ofnskúffu og bakið í um 45 mínútur fyrir ofan hrygginn í ofninum, eða þar til þær byrja að mýkjast. Snúið 1-2 x á þessum tíma.
- Þegar gulræturnar eru orðnar mjúkar má dreifa hnetunum yfir og baka í örfáar mínútur í viðbót.
- Setjið næst gulræturnar í skál og hellið smá sýrópi yfir þær áður en þeirra er notið.
Smjörsteiktar kartöflur
- 1 kg soðnar/forsoðnar kartöflur
- 70 g smjör
- 1-2 tsk. Bezt á allt hvítlaukskryddið
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Bræðið smjörið á pönnu við meðalháan hita og setjið kartöflurnar saman við.
- Kryddið þær og veltið í að minnsta kosti 15 mínútur þar til þær eru heitar í gegn.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir