Svona geymir þú afganga af páskamatnum

Húsráð | 10. apríl 2023

Svona geymir þú afganga af páskamatnum

Við höfum sannarlega gert vel við okkur síðustu daga og mögulega fengið okkur aðeins of oft á diskinn. Það eru afgangar eftir veisluhöldin og það þarf að sporna við matarsóun. Hér eru nokkkur skotheld ráð hvernig best sé að frysta afganga.

Svona geymir þú afganga af páskamatnum

Húsráð | 10. apríl 2023

Hér finnur þú góð ráð til að sporna við matarsóun.
Hér finnur þú góð ráð til að sporna við matarsóun. mbl.is/Colourbox

Við höf­um sann­ar­lega gert vel við okk­ur síðustu daga og mögu­lega fengið okk­ur aðeins of oft á disk­inn. Það eru af­gang­ar eft­ir veislu­höld­in og það þarf að sporna við mat­ar­sóun. Hér eru nokkk­ur skot­held ráð hvernig best sé að frysta af­ganga.

Við höf­um sann­ar­lega gert vel við okk­ur síðustu daga og mögu­lega fengið okk­ur aðeins of oft á disk­inn. Það eru af­gang­ar eft­ir veislu­höld­in og það þarf að sporna við mat­ar­sóun. Hér eru nokkk­ur skot­held ráð hvernig best sé að frysta af­ganga.

Ekki und­ir -18 gráðum
Fyr­ir það fyrsta á fryst­ir­inn ekki að vera und­ir -18 gráðum til að halda bakt­erí­um í skefj­um, því þannig helst mat­ur­inn leng­ur fersk­ur.

Setjið sem fyrst í frysti
Því fyrr sem mat­ur­inn rat­ar inn í kæli, því betra. Hafa skal í huga að mat­var­an þarf að vera orðin al­veg köld áður en þú set­ur hana inn í frysti.

Réttu umbúðirn­ar
Það eru ekki all­ar umbúðir sem þola frost. Ef það er eitt­hvað sem þú hef­ur t.d. keypt í búðinni og ætl­ar að frysta, er oft gott að umpakka í frysti­poka þar sem mat­ur­inn mun hald­ast leng­ur. Eins er gott ráð að merkja pok­ana með dag­setn­ingu, þá hvaða dag mat­ur­inn fer inn í frysti.

Jafn­vægið
Til að fryst­ir­inn sinni störf­um sín­um hvað best, þá má hann ekki vera of full­ur og held­ur ekki of lítið í hon­um til að loftið nái að leika um hann. Notið fryst­inn að vild og fyllið hann eft­ir þörf­um - passið bara að troða ekki í hann.

Loft­tæmið

Reynið að ná öllu um­fram lofti úr umbúðunum. Frysti­vara geym­ist best í loft­tæmd­um umbúðum.

mbl.is