Alvarleg staða uppi í Árborg

Fjárhagsvandi Árborgar | 11. apríl 2023

Alvarleg staða uppi í Árborg

Bragi Bjarna­son, formaður bæj­ar­ráðs sveit­ar­fé­lags­ins Árborg­ar, segir fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins alvarlega. Hann er þó bjartsýnn á að sveitarfélagið nái að vinna sig út úr erfiðleikunum. Búið er að vinna áætlun í samstarfi við innviða­ráðuneytið um endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins, sem verður kynnt á sérstökum íbúafundi á morgun.

Alvarleg staða uppi í Árborg

Fjárhagsvandi Árborgar | 11. apríl 2023

Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið hratt síðustu árin. Hefur það m.a. …
Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið hratt síðustu árin. Hefur það m.a. leitt til þess að það er orðið mjög skuldsett. mbl.is/Sigurður Bogi

Bragi Bjarna­son, formaður bæj­ar­ráðs sveit­ar­fé­lags­ins Árborg­ar, segir fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins alvarlega. Hann er þó bjartsýnn á að sveitarfélagið nái að vinna sig út úr erfiðleikunum. Búið er að vinna áætlun í samstarfi við innviða­ráðuneytið um endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins, sem verður kynnt á sérstökum íbúafundi á morgun.

Bragi Bjarna­son, formaður bæj­ar­ráðs sveit­ar­fé­lags­ins Árborg­ar, segir fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins alvarlega. Hann er þó bjartsýnn á að sveitarfélagið nái að vinna sig út úr erfiðleikunum. Búið er að vinna áætlun í samstarfi við innviða­ráðuneytið um endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins, sem verður kynnt á sérstökum íbúafundi á morgun.

„Fjárhagsstaðan er erfið hjá sveitarfélaginu og það hefur alveg komið fram í gegnum kosningabaráttuna og í fréttum síðasta árið. Við erum orðin mjög skuldsett. Það hefur verið mikið fjárfest á síðustu árum og sveitarfélagið hefur vaxið mjög hratt. Staðan er alvarleg hjá sveitarfélaginu og við viljum bregðast við strax,“ segir Bragi í samtali við Morgunblaðið.

„Núverandi bæjarstjórn vill ekki að við lendum í meira óefni en er nú þegar og við viljum takast á við vandann strax til að ná okkur út úr þessu. Þá viljum við hafa sem sterkasta bakhjarla með okkur í liði og innviða­ráðuneytið er hluti af þeim,“ bætir hann við.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is