Boðar ekki breytingar í rekstri Leo Seafood og Ós

Vinnslustöðin | 18. apríl 2023

Boðar ekki breytingar í rekstri Leo Seafood og Ós

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir ekki ástæðu til að óttast að gerðar verði breytingar í rekstri Leo Seafood ehf. eða Ós ehf. við yfirtöku Vinnslustöðvarinnar, en samningur þess efnis kemur til framkvæmda sumardaginn fyrsta (fimmtudag 20. apríl).

Boðar ekki breytingar í rekstri Leo Seafood og Ós

Vinnslustöðin | 18. apríl 2023

Frá undirritun samninga um kaup á félögunum tveimur í janúar. …
Frá undirritun samninga um kaup á félögunum tveimur í janúar. (f.v.) Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Leo Seafood, Viðar Sigurjónsson, skipstjóri, Sigurjón Óskarsson og eiginkona hans, Sigurlaug Alfreðsdóttir, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV, Andrea Atladóttir, fjármálastjóri VSV, Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, fjármálastjóri Óss og Gylfi Sigurjónsson skipstjóri.

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir ekki ástæðu til að óttast að gerðar verði breytingar í rekstri Leo Seafood ehf. eða Ós ehf. við yfirtöku Vinnslustöðvarinnar, en samningur þess efnis kemur til framkvæmda sumardaginn fyrsta (fimmtudag 20. apríl).

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir ekki ástæðu til að óttast að gerðar verði breytingar í rekstri Leo Seafood ehf. eða Ós ehf. við yfirtöku Vinnslustöðvarinnar, en samningur þess efnis kemur til framkvæmda sumardaginn fyrsta (fimmtudag 20. apríl).

Samkeppniseftirlitið samþykkti nýverið kaup Vinnslustöðvarinnar á félögunum tveimur en við það fer kvótahlutdeild samsteypunnar í 7% í þorskígildiskílóum. Þá gerði Fiskistofa ekki athugasemdir við kaupin.

„Við munum gera út Þórunni Sveinsdóttur áfram með áhöfninni sem þar er og engar breytingar eru heldur fyrirsjáanlegar í Leo Seafood. Félögin sem Vinnslustöðin er nú að kaupa eru vel rekin og góð,“ segir Sigurgeir í færslu á vef Vinnslustöðvarinnar.

„Samningurinn er stærsti viðburður sinnar tegundar í sögu Vinnslustöðvarinnar. Við erum að kaupa sem svarar til 1% af aflaheimildum landsmanna í þorskígildum og nú bætast við 100 starfsmenn í VSV-samstæðuna þar sem fyrir eru um 370 manns á launaskrá.“

mbl.is