Aspasbaka með beikoni og rjómaosti

Uppskriftir | 24. apríl 2023

Aspasbaka með beikoni og rjómaosti

Hér er á ferðinni einstaklega góð baka með rjómaosti með karamellíseruðum
lauk. Þessa verðið þið að prófa! Það er engin önnur en Helena Gunnarsdóttir sem á heiðurinn að þessari snilld.

Aspasbaka með beikoni og rjómaosti

Uppskriftir | 24. apríl 2023

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Botn:

  • 200 g hveiti (heilhveiti eða gróft spelt og hveiti til helminga)
  • 1⁄2 tsk. salt
  • 80 g kalt smjör skorið í litla bita
  • 1⁄2 dl vatn

Fylling:

  • 6 stk. sneiðar beikon, skornar smátt
  • 2 stk. skallottulaukar, smátt saxaðir (2-3)
  • 1 krukka eða dós aspas
  • 5 stk. egg
  • 2 dl rjómi frá Gott í matinn
  • 1 dl rifinn bragðmikill ostur eins og Óðals Tindur eða Óðals ostur
  • 6 msk. rjómaostur með karamelliseruðum lauk
  • 1⁄2 tsk. sinnepsduft (eða 1 tsk. dijon sinnep)
  • salt og pipar

Botn

  1. Hitið ofn í 170 gráður með blæstri, annars 190 gráður.
  2. Blandið smjörinu saman við hveitið með fingrunum þannig að það verði að mylsnu. Blandið vatninu vel saman við og hnoðið aðeins saman.
  3. Setjið í lausbotna bökuform eða eldfast mót og þrýstið í botninn og aðeins upp á hliðarnar.
  4. Gatið botninn með gaffli á nokkrum stöðum og forbakið í 15 mínútur.

Fylling

  1. Steikið beikonið þar til stökkt. Bætið þá lauknum á pönnuna og steikið áfram þar til laukurinn er mjúkur. Takið til hliðar.
  2. Pískið saman egg, rjóma, 3 msk. rjómaost, rifinn ost, sinnep og salt og pipar eftir smekk. Skerið aspasinn smátt og blandið saman við en skiljið toppana eftir til að skreyta bökuna með. Hellið beikoninu og lauknum saman við.
  3. Hellið fyllingunni í bökuskelina. Toppið með aspas og litlum doppum af rjómaosti.
  4. Bakið í 30 mínútur og berið fram volga eða við stofuhita.
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
mbl.is