Svo virðist sem einhleypir geti nú notað peru-táknið á samfélagsmiðlum til að gefa betur til kynna stöðu sína.

PEAR er nýtt hugtak sem snýst um að auðvelda einhleypum að skilgreina sig á samfélagsmiðlum sem og í daglegu lífi með litlum hring sem settur er á fingur. Það eru nú þegar um 1,2 milljarðar einhleypra alls staðar í heiminum sem nota hringinn og hafa sett peru-táknið á reikningana sína á Instagram og víðar. Talað er um að PEAR sé að stroka stefnumótaforrit út af kortinu með þessari aðferð – en það er þó umdeilt engu að síður.
Hringurinn er þeirrar gerðar að hann má bera á hvaða fingri sem er og hefur peru-æðið rutt sér hratt til rúms í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu og hver veit nema Ísland sé næst á lista. Þeir sem festa kaup á hring frá PEAR munu einnig fá boð á hátíðina PearFest, sem er markaðssett sem stærsta hátíð einhleypra.
Fyrir áhugasama, þá má skoða PEAR nánar HÉR.