Kamilla tekst á við sambandsslitin með bleiku hári

Í sitthvora áttina | 26. apríl 2023

Kamilla Einarsdóttir rithöfundur taldi sig hafa fundið ástina þegar hún hitti Sigurð Orra Kristjánsson, fréttamann á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. Smartland greindi frá sambandinu 13. mars en nú hefur ástin fuðrað upp. Úti er ævintýri. 

Kamilla Einarsdóttir.

Kamilla greinir frá því á félagsmiðlinum Twitter að hún sé alveg ómöguleg og sé nú þegar búin að gera marga furðulega hluti til þess að reyna að takast á við tilfinningar sínar. 

Hún hefur nú þegar litað hárið á sér bleikt, pantað og afpantað tíma í húðflúr og farið offari í að greina tilfinningar sínar.

Smartland sendir hlýjar kveðjur og rafrænt faðmlag til Kamillu og vonar að hún hressist fljótt og örugglega. 

mbl.is