Glaðværir endurfundir níu mánuðum eftir sambandsslit

Kardashian | 2. maí 2023

Glaðværir endurfundir níu mánuðum eftir sambandsslit

Kim Kardashian og Pete Davidson hittust á Met Gala, níu mánuðum eftir að þau hættu saman.

Glaðværir endurfundir níu mánuðum eftir sambandsslit

Kardashian | 2. maí 2023

Kim Kardashian og Pete Davidson voru glæsileg á Met Gala.
Kim Kardashian og Pete Davidson voru glæsileg á Met Gala. Samsett mynd

Kim Kardashian og Pete Davidson hittust á Met Gala, níu mánuðum eftir að þau hættu saman.

Kim Kardashian og Pete Davidson hittust á Met Gala, níu mánuðum eftir að þau hættu saman.

Fyrrverandi parið sást á spjalli með söngvaranum Usher og virtust endurfundirnir hafa gengið vel fyrir sig.

Pete Davidson og Kim Kardashian á spjalli við Usher á …
Pete Davidson og Kim Kardashian á spjalli við Usher á Met Gala 2023. Skjáskot/Youtube

Kardashian og Davidson hættu saman í byrjun ágústmánaðar í fyrra eftir um það bil tíu mánaða samband. Komu sambandsslitin nokkuð á óvart, þar sem Davidson hafði stuttu á undan lýst því yfir að hann ætlaði sér að giftast Kardashian og hafði auk þess húðflúrað nöfn barna hennar á sig.

Kim Kardshian og Pete Davidson hamingjusöm á Met Gala í …
Kim Kardshian og Pete Davidson hamingjusöm á Met Gala í fyrra, þegar allt lék í lyndi. AFP
mbl.is