Sjáðu barnakóra syngja lag Diljár

Eurovision | 3. maí 2023

Sjáðu barnakóra syngja lag Diljár

Mikil sönggleði var í Smáraskóla síðastliðna helgi er landsmót íslenskra barnakóra var haldið. Alls mættu 250 börn víðs vegar af landinu og var þema mótsins að þessu sinni Eurovision.

Sjáðu barnakóra syngja lag Diljár

Eurovision | 3. maí 2023

Forseti Ísland, Guðni Th. Jóhannesson, ræddi við börnin á Landsmóti …
Forseti Ísland, Guðni Th. Jóhannesson, ræddi við börnin á Landsmóti íslenskra barnakóra. Ljósmynd/Aðsend mynd

Mikil sönggleði var í Smáraskóla síðastliðna helgi er landsmót íslenskra barnakóra var haldið. Alls mættu 250 börn víðs vegar af landinu og var þema mótsins að þessu sinni Eurovision.

Mikil sönggleði var í Smáraskóla síðastliðna helgi er landsmót íslenskra barnakóra var haldið. Alls mættu 250 börn víðs vegar af landinu og var þema mótsins að þessu sinni Eurovision.

Mótinu lauk með lokatónleikum í troðfullri Digraneskirkju þar sem nýjar útsetningar við uppáhalds Eurovisionlög Íslendinga voru sungnar. Einnig fluttu kórarnir nýja útsetningu af framlagi Íslands í Eurovision í ár. Með flutningnum vildu börnin senda hlýjar kveðjur til Diljár og föruneytis hennar og óska þeim góðs gengis.

Eins og sést á myndunum hér fyrir neðan var góð stemning á mótinu, enda fátt betra en söngur til að tengja saman fólk. 

Ljósmynd/Aðsend mynd
Ljósmynd/Aðsend mynd
mbl.is